Í ljósi aðstæðna er þörf á samþjöppun á prentmarkaði. Við byrjum nýtt ár með sameiningu GuðjónÓ, Litrófs og Prenttækni.

Bókavirkið bókbandsstofa er einnig hluti af þessari sameiningu og því verðum við sterk í bókagerð, stafrænni- og almennri prentun, og öllu sem viðskiptalífið og einstaklingar þarfnast.
Reykjavík Letterpress verður einnig í sama húsnæði, í Vatnagörðum 14.

GuðjónÓ hefur framleitt dagatalskubb í rúman áratug. Fyrir kubbnum hefur skapast sterk hefð og útlit hans hefur verið eins frá því elstu menn muna. Einnig framleiðir prentsmiðjan mánaðartöl, borðalmanök og spjöld með átta tegundum landslagsmynda.

Þessar vörur má nálgast í helstu bókabúðum landsins og einnig hér í  prentsmiðjunni.

Einnig bjóðum við upp á sérprentanir fyrir fyrirtæki á dagatölum og dagatalaspjöldum. – dagatal@wordpress-1229155-4414846.cloudwaysapps.com.

Panta dagatal